Júbílantahátíð Menntaskólans á Akureyri 2026 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri þriðjudaginn 16. júní nk.
Uppsetning hátíðarinnar verður með hefðbundnum hætti – húsið opnar kl. 18:00 með fordrykk og borðhald hefst kl 19:00.
Hátíðarmatseðill frá Bautanum/Rub23:
FORRÉTTUR: Úrval ýmissa smárétta.
AÐALRÉTTUR: Grilluð nautalund í RUB23 kryddblöndu með nípumauki, kartöflum, hunangs gulrótum og hvítlauks ristuðum sveppum, rauðvínsgljái og kaldur bernaise á borðum.
EFTIRRÉTTIR: Blondie með hvítsúkkulaðimús, hafrar, jarðaber og berjasósa, súkkulaði-karmellutart og appelsínusalat, bláberja panna cotta.
Þau sem vilja vegan eða fiskseðil, eða eru með ofnæmi, eru beðin um að senda póst
á bautinn@bautinn.is með nafni og upplýsingum.
Veislustjórar kvöldsins verða Þórgunnur Oddsdóttir og Hannes Árdal.
Á miðnætti munu hvítu kollar eins árs stúdenta fjúka.
Á efri hæðinni verður hægt að taka lagið í karaókí, spjalla og smella af sér myndum í
myndaklefa.
Á stóra sviðinu munu Erna Hrönn og Jónsi ásamt hljómsveit halda uppi fjörinu fram á nótt!
Hægt er að kaupa miða bara á ballið, 5900 kr. Miðasala á tix.is.
Miðaverð á hátíðina er 21.900 kr. Miðasala er hafin á tix.is, takmarkaður miðafjöldi.