Verkfall BSRB hefur víðtæk áhrif á Akureyri, m.a. þau að íþróttamannvirkjum verður lokað þar til deilur leysast. Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir hátíðina okkar þann 16. júní í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem forstöðumaður íþróttamála hefur leyfi til að opna og læsa húsinu. Undirbúningur Júbílantahátíðarinnar er því áfram í fullum gangi og við hlökkum til að taka á móti ykkur í Höllinni en vonum að sjálfsögðu að deiluaðilar leysi málin fljótt og farsællega.