Miðasala

Miðasalan er hafin!

Afar mikilvægt er að velja réttan afmælisárgang þegar miðinn er pantaður, til að tryggja að þú sitjir hjá skemmtilegasta fólkinu – þínum árgangi!

Júbílantahátíðin 2025 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri mánudaginn 16. júní nk. Uppsetning hátíðarinnar verður með hefðbundnum hætti – húsið opnar kl. 18:00 með fordrykk og lifandi tónlist.

Borðhald hefst kl 19:00.

Hátíðarmatseðill frá Bautanum/Rub23:

FORRÉTTUR: Úrval ýmissa smárétta ásamt fordrykk við komu.

AÐALRÉTTUR: Nautalund, karamelliseraður rauðlaukur, jógúrtkartöflumús, brokkólíni og sveppasoðgljái.

EFTIRRÉTTUR: Súkkulaði-brownie, hvítsúkkulaðirjómi, jarðarber og mulningur.

Þau sem óska eftir vegan/grænmetisrétt eru beðin um að senda póst á bautinn@bautinn.is og taka fram hvaða árgangi þú tilheyrir.