Hátíðin er að byrja að taka á sig mynd. Við höfum nú verið í sambandi við helstu skemmtikrafta landsins og fengið tillögur að dýrindis matseðlum frá Bautanum/RUB23. Við tilkynnum það von bráðar, þetta er allt að koma.

Við erum líka að safna að okkur tengiliðum við árganga og okkur langar að biðja þá um að senda okkur póst á jubilantar23@gmail.com þannig að við höfum netfang tengiliðsins og getum komið upplýsingum áleiðis á skemmtilegan hátt. Við erum nú þegar komin með góðan hóp tengiliða. Við erum líka með póstlista hér til hliðar sem öllum er frjálst að skrá sig á, þar sendum við út upplýsingar þegar miðasalan hefst.

Í netfangið tökum við líka við spurningum og þiggjum ábendingar um hvaðeina.

Það er fátt skemmtilegra en að vera júbíant, njótum þess! 🙂