Miðasala og Facebook

by | apr 28, 2023 | Tilkynningar

Miðasalan er hafin!

Á miðasölusíðunni okkar, jubilantar.is/midasala má finna tengla yfir á miðana sem tilheyra afmælisárgöngum. Mikilvægt er að velja réttan árgang, eða a.m.k. þann árgang sem þú vilt sitja með 😉 Makar og önnur sem þið viljið njóta kvöldsins með eru að sjálfsögðu velkomin. Við mælum með að tryggja sér miða sem fyrst en þann 1. júní hækkar almennt miðaverð um 1.000,- kr. Verði afgangur af rekstri viðburðarins fer allur ágóði í Uglusjóð MA.

Við höfum líka opnað facebook síðu fyrir þá sem eru þar og vilja fylgjast með. Við ætlum að birta í facebook story á hverjum degi þar sem við teljum niður dagana fram að hátíðinni og minnum á það sem mætti huga að í undirbúningnum.