Kæru skólafélagar.
Nú er svo komið að Höllin rúmar ekki fleiri í mat og lokað hefur verið fyrir frekari miðasölu í matinn. Hins vegar er ennþá hægt að kaupa miða bara á ballið, smellið hér.
Við þökkum frábærar viðtökur og hlökkum til að sjá ykkur 16. júní.
Ef einhverjir, sem hafa keypt miða, sjá ekki fram á að komast á hátíðina er heimilt að framselja miða. Ef það er milli árganga er mikilvægt að láta vita þannig að hægt sé að taka tillit til þess við borðaskipulag.
Netfangið okkar er jubilantar25@gmail.com.
Sendið póst á bautinn@bautinn.is ef þið hafið séróskir um mat.